![Hálftómt glas ft. Brek](https://source.boomplaymusic.com/group10/M00/12/22/bdea125da3584b5c91ab0c40d77cafee_464_464.jpg)
Hálftómt glas ft. Brek Lyrics
- Genre:World Music/Folklore
- Year of Release:2023
Lyrics
Hún lítur við og hrekkur upp við andvarpið
Á móti sól hún heldur, þar er móteitrið
Í dagsins önn hún virðist grafin undir fönn
Eins og ég og þú, hún berst á móti tímans tönn
Eitt í dag á morgun eitthvað allt annað
en hálftómt glas er hálffullt ef þú gáir að
Og hvað með það þótt tilveran sé sitt á hvað?
Ef hálftómt glas er botnfylli og meira en það
Þó grasið grænt rétt handan árinnar sé vænt
þá baksýnin því augnabliki getur rænt
Hún brúar bil og snýr svo tafli sér í vil
En gleði og sorg bjóða ekki upp á augljós skil
Eitt í dag á morgun eitthvað allt annað
En hálftómt glas er hálffullt ef þú gáir að
Og hvað með það þótt tilveran sé sitt á hvað?
Ef hálftómt glas er botnfylli og meira en það
Hún reynir allt lengst uppi á fjalli og úti á sjó
Að finna nóg og innra með sér hugarró